Akranes
01. júní 2009 klukkan 14:20
Ætla að byrja aftur að blogga! Svona öðruhvoru, þegar ég hef eitthvað merkilegt að segja frá! Er í augnablikinu stödd á Akranesi hjá fjölskyldunni, frábært að koma í heimsókn! Er samt mikið að hugsa um að flytja heim í haust, og fara í FVA :) Það er svo spennandi að prófa nýja staði! Alveg frá því að ég fæddist, fæddist á Akranesi btw, hef ég alltaf verið með annann fótinn hérna, þó ég hafi aldrei búið hérna. Ömmur og afar í báðar ættir búa hérna og flestir úr föðurætt, má ekki láta mig vanta :) En sumarið verður bara að leiða í ljós hvað ég geri í haust! Ætla ekkert að ákveða mig strax.
Ætla ekkert að setja inn neinar myndir hingað, það dælist allt inn á facebook :) Það á örugglega enginn eftir að skoða blogg í dag, það er svo gamaldags! Það er bara svo gaman að geta sagt frá einhverju sem er það langt að það passi ekki inn í status kassann á facebook.
Ætla ekkert heim á Ísafjörð strax, ætla bara að dúlla mér á skaganum, fara í ræktina og spila golf :) Bara hafa það nice! Bless í bili!